Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Svandís Óskarsdóttir
  • Netfang: svandisosk@hotmail.com
  • Staður: Reyðarfjörður
  • Heimilisfang: Kvíabrekka 4
  • Símanúmer: 6922852/5644744
  • Atvinna: Álkona í álverinu á Reyðarfirði
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð
  • Um mig: Ég er lítil saklaus stúlkukind af ströndunum sem er nýflutt á Reyðarfjörðinn ásamt ástinni minni honum Ingþóri og prinsinum okkar honum Daníel.. Hérna ætlum við að verða big happy family. Ég ætla að verða álkona í Álverinu á Reyðarfirði.

Tæknin ekki að gera sig!!!

11. júlí 2008 klukkan 19:25
HALLÓ-HALLÓ!!
Hvað er í gangi.. ég var að reyna á tæknina en hún er greinilega ekki ekki að standa sig..
Ákvað að prófa að blogga úr símanum mínum en það gekk greinilega ekki betur en þetta..
Ég var að reyna að segja ykkur frá því að við erum í sumarfríi og  vorum stödd í sumarbústað en ég nenni ekki að skrifa um það núna, læt það bíða betri tíma.. en ég get samt sagt ykkur það að sumarfríið er að verða búið:-( bara rétt rúmlega vika eftirFýldur

En þið munið að um næstu helgi eða 19. júlí verður...
BRYGGJUHÁTÍÐ á Drangsnesi...
Allir að mæta:-)

Svalur

Nýjasta tækni og vísindi

08. júlí 2008 klukkan 13:00
Mikid er tæknin ordin mikil þegar ég get bloggad úr símanum mínum:-). Þá hefur madur enga afsökun lengur:-S. En allavegana, þá erum vid stödd í sumarbústad vid úlfljótsvatn. Sumarfríid rétt rúmlega hálnad. Erum búin ad vera á Drangsnesi mest allan tímann med smá vidkomu í höfudborginni. Erum búin ad vera í bústad sídan á föstudaginn og verdum fram á næsta föstudag. Núna erum vid bara 3 en þad er búid ad vera mikill gestagangur alla helgina og ma&pa og systkini mín og fjölsk. Fóru frá okkur í gær (mánud.) Ella tengdó er svo bara ad mæta á svædid akkúrat í þessum töludum ordum.. Svo er þad Reykjavíkin um næstu helgi og svo er bara komid ad bryggjuhátídinni. Allir ad mætaB-)B-)B-)... Sjáumst þar:-D:-D..

Ný myndasíða!!

07. mars 2008 klukkan 12:15
Ég er komin með nýja myndasíðu..
Er komin með prufusíðu á 123.is.. ætla að prófa hana og ef ég verð sátt eftir prufutímann þá hugsa ég að ég skipti alfarið yfir.. það er allavega auðvelt að setja inn myndir þar..

Annars er voða lítið að frétta, allt á kafi í snjó en samt hlýtt og flott veður.. en það hefur snjóað þvílíkt síðustu daga.. Í morgun ætlaði ég að skutla Daníel í skólann en það voru bara bílar fastir á víð og dreif hérna í hverfinu, og ekki búið að moka.. en sem betur fer þá slapp ég við það, fékk bara nágrannann til að fara í staðinn.. ég hefði sjálfsagt fest mig einhver staðar því ég er svo mikill klaufi að keyra í svona færð..

Við vorum að eignast litla frænku í vikunni, Svava og Elvar eignuðust stelpu 2. mars.. Innilega til hamingju með það elskurnar!!!

Nú fara að koma páskar og auðvitað erum við að vinna:-( Daníel ætlar að skreppa á Drangsnes í páskafríinu og vera svo í Reykjavík um páskana.. sem betur fer, það er hundleiðinlegt fyrir hann að vera hér og við að vinna alla páskana..

Hef bara ekkert merkilegt að segja enda ætlaði ég bara að láta ykkur vita að það væru komnar inn myndir hér:
http://www.123.is/disaosk/

!!

25. febrúar 2008 klukkan 19:53
Þá erum við komin heim aftur í "sveita"sæluna!!
Mikið er alltaf gott að koma aftur heim, alveg sama hvar það er, þó að það hafi verið gaman að skreppa suður þá er það bara þannig að HEIMA ER BEST!!

Reykjavíkurferðin gekk vel, hittum ekki svo marga, auðvitað tengdó og ömmu og afa, það er nú ekki hægt að fara suður nema hitta þau.. Svava og co. og Begga og Aþena kíktu í heimsókn í Kóngsbakkann.. því eins og ég sagði í síðasta bloggi þá vorum við ekki á okkar bíl þannig að við vissum ekkert hvenær við værum í bíl, við tókum þá ákvörðun að bjóða þeim sem höfðu samband við okkur (við semsagt hringdum ekki í neinn til að láta vita að við værum í bænum) að bjóða þeim bara heim til okkar í Kóngsbakkann og það voru Svava og Begga sem vildu endilega hitta okkur:-) Takk fyrir heimsóknina stelpur mínar.,. Þið hin misstuð af þvílíku kaffihlaðborði;-)

Þetta var mestmegnis læknisferð hjá okkur en ekki "skemmtilferð" en við Ingþór ákváðum samt að halda upp á Valentínusardaginn og þriggja ára afmælið okkar skötuhjúa og fórum að sjá Brúðgumann í bíó og svo út að borða á Fjörukrána.. rosa góður matur en kannski ekki svona rómó stemming, allavega á næsta borði voru nokkrar "kellingar" út að borða og við vitum hvernig það getur farið þegar stelpur fara saman og fá sé öllara;-) En fínt samt:-)

Mamma, pabbi og Harpa kíktu líka í bæinn, alltaf gaman að hitta þau, svo var okkur öllum boðið í hádegismat hjá Fríðu frænku og co. þar voru öll systkinin hans pabba og amma og afi.. langt síðan við höfum hitt það fólk.. og auðvitað var það þrælskemmtilegt..

Síðan við komum heim þá hefur það bara verið vinna NEMA að lasarusinn fann okkur hann var hér á ferðinni fyrir og um helgina. Ingþór byrjaði og fékk bullandi hita og svo kom ég en ég slapp þó við hitann en var þvílíkt slöpp.. við náðum þó einni helgarvakt af þremur .. en það er svo merkilegt að hann Daníel sleppur alltaf við þessa pestir (7,9,13..) hann hefur ekki enn fengið þetta ógeð, ætla bara að vona að hann sleppi .. Við vorum að ræða það núna að hann hefur ekki fengið pest síðan við bjuggum í Kóngsbakkanum.. að okkur minnir.. og það eru allavega eitt og hálft ár síðan við fluttum þaðan..

Við höfum fengið sumarveður hérna fyrir austan undanfarið en um helgina tók hann upp á því að snjóa einu sinni enn.. verð nú að segja að ég bíð spennt eftir sumrinu.. ætla bara rétt að vona að við fáum gott sumar.. en við erum allavega farið að sjást til sólar, hún hefur skinið skært síðustu daga, það er bara gaman..

Daníel er að fara að fótboltamót til Akureyrar helgina 14-16 mars.. það er mikill spenningur fyrir því ,svo er bara komið páskafrí eftir það og þá ætlar hann að skreppa á Drangsnesið og vera svo í Reykjavík um
páskana, við erum hvort sem er að vinna þannig að það verður gott fyrir hann að komast í burtu..

Ég er að reyna að setja inn þorramyndir inn á bloggarmyndasíðuna, vona að það sé að takast..
Ég er orðin uppiskroppa með fréttir, er líka orðin svo gleymin að ég man ekki stundinni lengur;-)
En við verðum í bandi..
Bæjó..

P.S. Svava, við bíðum spennt eftir fréttum;-)

Endilega veriði duglegri að kvitta, mig sýnist þær mæðgur vera duglegastar:-)
Takk fyrir það elsku frænkur:-)

Vetur!!!!!!

07. febrúar 2008 klukkan 16:06
Jæja gott fólk!

Nú er sko vetur konungur búinn að gera sig heimakominn hér á landinu.. Hérna fyrir austan hefur snjóað þvílíkt að menn muna bara ekki annað eins, fólk sem ég hef talað við segir að það séu mjög ár síðan það hefur verið svo mikill vetur, það er allavega allt á kafi í snjó. Sem betur fer höfðum við vit (og peninga) á því að versla okkur jeppa fyrir jól því við kæmumst ekki langt á græna flotta gólfinum.. En núna er búið að vera slydda og blautt svo vonandi fer snjórinn eitthvað að minnka..

Um síðustu helgi snjóaði svo mikið að við komumst ekki upp að húsinu á mánudaginn þegar við komum heim að norðan, en Daníel er búinn að moka aðeins svo það er hægt að labba útí bíl;-)

Annars fórum við norður á Strandir um síðustu helgi.. óðum af stað þrátt fyrir frekar leiðinlegt veður og mikinn vetur, en við sjáum sko ekki eftur því..
Við vorum rúmlega 10 tíma á leiðinni.. hvora leið.. í leiðinda veðri mest alla leiðina... En við komumst á leiðarenda og hittum allt fólkið mitt, nema Tomma sem komst ekki:-( en við vorum þarna öll systkinin og það er orðið ansi langt síðan það hefur gerst.. held það hafi verið á Bryggjuhátíðinni síðast.. við erum ekki vön að láta líða svona langt á milli hittinga en það gerist ekki aftur, er það nokkuð krakkar???
Alltaf svo gaman á svona fjölskylduhitting, allir svo kátir og hressir og ánægðir að vera saman.. kannski bara ágætt að við hittumst ekki svo oft því annars væri þetta ekki svona gaman..
Samt leiðinlegt hvað við hittum Öllu og Dóra lítið en þau voru í þorranefndinni og voru upptekin í því.. en vonandi verður ekki langt að líða þangað til við hittum þau aftur..
EN þorrablótið var mjög gott, skemmtileg atriði eins og alltaf og gott ball, MIKIÐ drukkið og sumir fengu að kynnast hálkunni á leiðinni heim í háttinn;-)
Svo var auðvitað þynnkudagur á sunnudaginn nema hjá Freyju og Haffa, þau þurftu að keyra suður, helgin búin hjá þeim en við fengum að vera þunn í friði því við fórum heim á mánudeginum.. Það gekk ótrúlega vel að ferðast þrátt fyrir leiðinlegt veður en ég er ekki viss um að við gerum þetta aftur á þessum vetri, ætlum reyndar norður í maí þegar pabbi minn verður fimmtugur en þá ætlast ég til þess að það verði komið vor og allur snjór farinn.. (bjartsýn)..

Svo erum við að fara suður núna eftir næstu helgi (ég veit, við erum mikið á flakkinu)
förum á mánudagskvöldi og verðum alveg fram á sunnudag:-) Ég hlakka svo til :-)
Og nei.. þetta verður ekki verslunarferð... eða á ekki að vera það;-) eru ekki allar útsölur hvort sem er búnar??

Annars er bara lítið að frétta af okkur, við erum bara að vinna og Daníel í skólanum, þess á mili erum við bara heima að hafa það gott.. erum soldið mikið kúrufólk:-)

Látum þetta duga núna en vonandi sjáum við sem flesta í næstu Reykjavíkurferð, þar sem við verðum bíllaus þá er ykkur boðið í heimsókn í Kóngsbakka 8..
Veit allavega að Svava og co ætla að kíkja við.. hlakka til að sjá ykkur;-)
EN við verðum í bandi og verið nú dugleg að kvitta þegar þið kíkið hingað inn:-)

Síja..
Dísa og strákarnir

P.S. Er búin að vera dugleg að setja inn nýjar myndir, bæði í ný albúm og jólaalbúmið..

p.p.S.   Á eftir að setja inn fleiri myndir en ég kem ekki fleirum myndum inn á myndasíðu5,  þarf að finna mér nýja síðu.. Kem með fleiri myndir þegar því er reddað, læt ykkur vita!!!
(Alla var nefnilega að rukka um systkina myndirnar;-))

Suprise!!!!!!!!!!!

11. janúar 2008 klukkan 22:50
Nú kem ég ykkur aldeilis á óvart!!! Er það ekki?? Bara 2 blogg á einni viku.. geri aðrir betur..
Er bara einhvern veginn í stuði fyrir blogg, maður verður að vera í ákveðnu skapi til að blogga, eða ég er þannig allavega..

Langaði bara að segja ykkur að nú fer að líða að því að "litli" drengurinn minn er að verða 10 ára, núna á miðvikudaginn 16.. Þegar ég hugsa um það þá finnst mér ég vera orðin svo gömul, ég meina ég er bara rétt skriðin yfir þrítugt;-) og ég á 10 ára gamlan son..
En maður er víst að eldast og það er nú bara ekkert verra... Maður á bara eftir að gera svo margt á lífsleiðinni, t.d. eignast fleiri börn áður en við verðum orðin of gömul, kaupa okkar fyrstu íbúð, ferðast um heiminn og svo margt fleira, og allt þetta áður en árin verða orðin of mörg..

Við erum búin að panta á pizzastaðnum hérna veislu fyrir bekkinn, það eru 22 krakkar í bekknum hans og ég nenni engan veginn að fá allt þetta lið hingað heim, þannig að þeim verður bara boðið í pizzu á þriðjudaginn og allir borða á sig gat af pizzu.. Mjög einfalt og gott, allavega sleppur maður mjög létt frá þessu. Svo verður "fjölskyldu" afmæli helgina eftir, það eru nú samt ekki margir hérna sem við teljum vera í fjölskyldunni en samt nokkrir.. Ef þið verðið á feðinni hérna fyrir austan um næstu helgi þá bara velkomin í kaffi...;-) Alltaf hægt að bæta við fleirum í fjölskylduna:-)

Núna er vinnuhelgi framundan, Ingþór er á næturvöktum og er að vinna núna en ég er á dagvöktum, vinn laugardag, sunnudag og mánudag.. svo frí í 1 og hálfan dag og svo 2 næturvaktir og svo kemur löng fríhelgi, frá föstudagsmorgni til þriðjudagmorguns.. rosa gott að fá svona löng frí inn á milli..

Nú stefnum við að því að mæta á þorrablót á Drangsnesi fyrstu helgina í febrúar, Alla systir er að undirbúa gott þorrablót fyrir systir.. Eins gott að veðurguðinn sé okkur hliðhollur og hleypi okkur norður, annars verðum við mjög svekkt.. ákváðum það þegar við keyptum okkur jeppann að nú skildum við skreppa norður á strandir.. við höfum ekki séð fólkið mitt síðan í júlí og ágúst.. sodið langt síðan og við erum farin að sakna þeirra fyrir löngu...

Haldiði ekki að mín sé bara búin að versla sér eitt stykki líkamsræktarkort og nú á sko að taka á því.... eða það er allavega planið en það er nú ekki alltaf að standast þessi plön hjá manni en ég ætla mér að vera dugleg að mæta.. finnst rosa gott að mæta á morgnana um leið og Daníel fer í skólann þá getum við verið samferða því skólinn er við hliðia á ræktinni, frekar þægilegt.. þá hafa líka verið frekar fáir í ræktinni og enginn að þvælast fyrir manni;-) maður þarf náttúrulega sitt pláss..

Jólaskrautið var tekið niður í gær með trega, það er ekki eins skemmtilegt að taka það niður eins og að setja það upp, miklu meiri stemning í að setja það upp en það lá við tárum þegar allt var komið niður, svo tómlegt um að litast.. en þetta venst, svo er tíminn líka svo fljótur að líða að áður en maður veit af þá þarf maður að setja þetta upp aftur.. og taka það niður... aftur...

Er þetta ekki bara komið gott í þessari atrennu.. þegar það er að líða langt á milli blogga þá man maður ekki helminginn af því sem maður ætlaði að segja, þyrfti að ganga um með litla skrifblokk til að geta skrifað í hana þegar ég fæ hugljómun því hún er gleymd og tröllum gefin þegar ég loksins sest niður til að skrifa, þá fæ ég bara ritstíflu.. ekki gæti ég verið rithöfundur..

En þið munið eftir 16. janúar..blóm og gjafir vinsamlegast afþakkaðar en þeir sem vilja gleðja Daníel er bent á að skrifa litla kveðju til hans á bloggið hans eða bara mitt.. honum þætti mjög vænt um það.:-)
Biðjum að heilsa í bili og við sjáumst á þorrablóti á Drangsnesi i febrúar..

Dísan og guttarnir..

Nýtt ár runnið upp!!!

06. janúar 2008 klukkan 16:15
Gleðilegt ár elskurnar mínar og takk fyrir það gamla!!
Takk fyrir allar gjafirnar og jólakveðjurnar!!

Jæja, núna ætla ég að reyna að koma nokkrum orðum á blað og reyna að muna hvað hefur gerst skemmtilegt síðan síðast..
Held að ég komi bara með stikkorð, annars gæti þetta orðið ansi löng ritgerð.

-Fórum til Reykjavíkur að versla jólajóla.. og eitt stykki bíl

-keyptum okkur jeppa, Nissan Terrano ´99... svo við komumst alveg örugglega upp þessa blessaða brekku sem liggur upp í hverfið okkar. Þvílíkur munur að þurfa ekki að hafa áhyggjur yfir því hvort maður komist í búð..

-Fór í bakinu 2 dögum áður en við fórum suður, fékk þursabit.. hef bara aldrei lent í öðru eins, ég var bara alveg useless, gat ekki gert neitt í nokkra daga.. en ég fór samt suður og reyndi að klára jólainnkaupin... og það tókst:-)

-svo komu jólin.. þau voru ágæt, aðfangadagskvöld var yndislegt nema að Ingþór átti að fara á vakt kl. 20 en hann fékk að "klára" jólin með okkur og mætti bara seinna um kvöldið.. Hann var líka að vinna á jóladagskvöld..
Ég var að vinna á jóladag en kom heim með flensuskít og var því heima á annan í jólum (heppin).
Ömulegt að þurfa að vera að vinna á jólunum.. væri alveg til í að gera það aldrei aftur... þetta skemmdi soldið jólastemninguna..

-Daníel fór á Drangsnes milli jóla og nýárs.. gott fyrir hann að fá tilbreytingu, við vorum líka að vinna þá, honum hefði bara leiðst hérna heima.

-Við fengum gesti um áramótin, tengdapabbi og kærastan hans komu og voru með okkur á gamlárskvöld. Við borðuðum góðan mat og horfðum á skaupið en skutum engu upp.. fengum okkur svo aðeins í litlu tánna og höfðum það gaman. Bjarni, Kristján bróðir Bjarna, Siggi og Magga kíktu líka og það var bara mjög gaman..

-Amma hans Ingþórs lést 29. des. og við vorum á kistulagningu á föstudaginn og jarðarför í gær. Ella tengdamamma og Jón Karl komu og voru hjá okkur. Ég hitti fullt af ættingjum Ingþórs sem ég hef aldrei hitt áður en ég vona að við hittum þau fljótt aftur, frábært fólk þar á ferð..

-ég er alveg örugglega að gleyma einhverju sem ég gæti deilt með ykkur en það kemur kannski bara seinna.

-við þurfum að fara að skjótast á Egilsstaði, guttinn er að koma með fluginu á eftir..

Verðum í bandi..

Kveðja
Svandís og strákarnir

P.S. Jólamyndirnar eru komnar inn!!

Við erum á leiðinni!!!

04. desember 2007 klukkan 10:00
Nú fer að styttast í Reykjavíkurferð.. Förum með flugi á föstudagskvöldið.. Ákváðum að taka frekar flug, aldrei að vita með veður og ekki erum við á fjallabíl;-) og ekki sýnist mér vera gott útlit með auða vegi, ekki eins og staðan er í dag.. Hérna er sko allt fullt af snjó .. Við ætlum að nota tækifærið í bænum og skoða nokkra fjallabíla, það þýðir ekkert annað en að vera á góðum vetrarbíl þegar maður býr svona útí "sveit".. Við komumst ekki neitt þegar það snjóar svona, svo búum við uppi á melnum.. og það er frekar skemmtileg brekka hingað upp.. hef einu sinni lent í því að komast ekki alla leið upp, bílinn snerist bara og ég varð bara að gjöra svo vel að reyna að snúa við og komast heil á höldnu niður.. og það tókst:-) en það er ekkert gaman að vera drulluhræddur þegar maður þarf að fara í búð eða annað.. vonandi getum við gert góð kaup í næstu viku...
Við erum búin að setja upp allar seríur svo núna er bara nokkuð jólalegt um að litast, snjór úti og jólaljós, voða jóló.. Ætla svo að fara að vera dugleg og nota frídagana í að baka, það verða nú ekki bakaðar margar sortir á þessum bæ, kannski 3.. Reyndar eru það bara ég og Daníel sem borðum þessar kökur, Ingþór snertir þær ekki.. Ekki það að ég sé svona slæmur bakari... nei heldur borðar hann ekki sætinidi þessi elska.. ég baka kannski bara eitthvað gott brauð fyrir hann:-) EN mig langar að prófa að baka þessar sörur sem allir tala um, held að ég hafi einu sinni prófað þær en ég man ekkert hvernig þær tókust, en mig minnir endilega að þær hafi verið mjög góðar..
Ætla bara að hafa þetta stutt núna, vildi bara láta ykkur vita að við erum væntanleg um næstu helgi og verðum alveg fram á fimmtudag.. Ef það er djamm, partý eða bara einhver skemmtilegur hittingur þá endilega látið okkur vita, við erum alltaf til í að hitta skemmtilegt fólk;-)
Sí jú!!!

Fréttir að austan!!

16. nóvember 2007 klukkan 13:56
Nú er ég bara búin að fá nóg af kvarti og kveini um að það vanti nýja færslu á bloggið!!!
Þannig að ég gefst upp;-)
Ekki mikil ritgleði á þessum bæ greinilega.. EN ég gæti kannski reynt að koma nokkrum orðum á blað til að róa mannskapinn...

Hverju get ég svo laumað að ykkur.... Við höfum brallað ýmislegt um dagana, en einhvern veginn þegar maður ætlar að koma því niður á blað þá man maður ekki  meir!!

Daníel er fór suður aleinn í vetrarfríinu í skólanum. Hann fékk reyndar að verða samferða Bjarna vini okkar í fluginu en við gömlu vorum bara heima... og höfðum það fínt:-)
Notuðum tækifærið og skruppum í næturheimsókn til vina okkar á Seyðisfiði, rosa fínt að breyta aðeins til, smá tilbreyting frá kúrinu upp í sófa, þó að það sé æðislegt;-)

Svo kom veturinn... allt á kafi í snjó... heimilisfólkinu til mismikils ama.. yngsti meðlimurinn var þó kátastur með það.. sleðinn dreginn úr geymslunni og út að renna alveg fram á kvöld.. yfirleitt komið heim með ískaldar tær og putta...
En núna er bara vorveður, hlýtt en blautt..

Bjarni er búinn að sækja Gyðu sína og strákana.. þau voru hjá okkur í nokkra daga á meðan þau voru að bíða eftir íbúðinni sinni.. Svo fluttu þau bara útum svaladyrnar okkar og inn um  þvottahúsdyrnar sínar;-) Nei en þá er íbúðin þeirra bara í garðinum okkar;-) stofan og eldhúsið okkar snýr að herbergjum og þvottahúsinu hjá þeim.. við erum semsagt með sameiginlega garð...  Nú erum við í miðjunni, vinir okkar sitthvorum megin við okkur...bara gaman!!!

Við fórum á "jólagleði" með vinnunni um daginn, fórum á  "rokkveislu" á Neskaupstað.. Matur, show og ball... OG mikið rosalega var gaman.. Mjög langt síðan að ég hef skemmt mér svona vel, ekki síðan á Bryggjuhátíð heima í sumar.. alveg heilir 4 mánuðir;-) Þetta var akkúrat tónlistin sem ég fíla, gamalt og flott og það var dansað frá sér allt vit:-) Nú þarf ég ekki að djamma næstu 4  mánuðina allavega.. Kannski verður það bara næst árshátíðin...

Nú er víst farið að líða að jólum hérna á Austurlandi eins og allsstaðar annarsstaðar, en einhvers staðar hef ég tínt jólastemmingunni... er ekki sama jólabarnið og ég var bara fyrir 2 árum síðan.. á þessum tíma  þá var ég búin að setja upp seríur og byrjuð á jólakortum og ég veit ekki hvað.. en núna er ég voða róleg yfir þessu öllu saman..
Er samt búin að kaupa 3 jólagjafir, Daníel er búinn að fá jólaskyrtuna (frá ömmu sinni), reyndar prófuðum við Daníel að baka eina sort, fékk flugu í hausinn að mig langaði svo í súkkulaðibitakökur og ég lét það eftir mér!! Þær bragðast ágætlega.. en ætli maður fari ekki að huga að þessa öllu saman þegar líða fer að aðventu..
Er samt alltaf á leiðinni að fara að kaupa mér jólakortaefni, langar að búa til kort en ég gleymi því alltaf;-) ætli endi ekki með því að þið fáið bara "gamaldags" kort frá okkur:-)

En við eigum eftir eina Reykjavíkurferð fyrir jól, eini tíminn sem hentar okkur er í kringum helgina 8. des... annað hvort fyrir helgina eða eftir.. læt vita síðar.. Svo reiknum við með því að þurfa að fara til Akureyrar, vonandi bráðlega.. Þar langar mig að kaupa flestar jólagjafir:-)  Ég elska að kaupa jólagjafir:-)

Annars er bara allt fínt að frétta, við erum bara "alltaf" að vinna og Daníel gengur vel í skólanum. Nema að pestapúkinn er kominn inn á heimilið, Ingþór er búinn að vera veikur í viku og virðist ekkert vera að batna.. bara rétt að vona að við Daníel sleppum við þessa leiðindapest!!!!

Nú eru komnar nokkrar nýjar myndir inn á "Myndasíða5"..

Ég man ekki eftir neinu fleiru "merkilegu" sem ég sagt ykkur.. en vonandi verð ég duglegri að skrifa héðan í frá;-)

Biðjum kærlega að heilsa ykkur öllum!!
 Bestu kveðjur frá Reyðó!!
Dísan, lasarusinn og strákurinn!!



Gaman gaman!!!

10. október 2007 klukkan 15:06
Þá er fjölskyldan búin að skreppa til borgarinnar eftir langa bið.. Ákváðum að fara keyrandi og það tók "aðeins" 8 tíma... En það var alveg ótrúlegt hvað tíminn leið nú hratt, það er líka svo fallegt að keyra suðurleiðina, alltaf eitthvað til að skoða útum bílgluggann.. Við höfðum fjárfest í ferðadvd fyrir guttann til að stytta honum stundirnar á leiðinni og það svínvirkaði.. Hann horfði nú samt ekki stanslaust á það en það er gott að hafa það með þegar farið er í svona langar ferðir..
Það var margt brallað í borginni, farið í margar heimsóknir og farið oft út að borða og verslað slatta... Náðum að versla það sem við ætluðum, nýtt eldhúsborð og stóla, frystikistu og nýtt sjónvarp.. núna erum við stoltir eigendur af 32" LCD tæki..
En mikið rosalegt streð er þetta þegar maður skreppur suður, það er alveg brjálað að gera, manni langar að hitta alla og versla alveg helling.. Þetta var eiginlega bara streð að klára allt þetta sem okkur langaði að gera.. Næst þegar við förum suður þá langar mig bara að bjóða öllum í kaffi í Kóngsbakkann og hitta alla á einu bretti.. fara með smá tölu um það hvernig okkur gengur og hvernig okkur líkar þetta nýja líf okkar, og þá er það bara búið og þá er hægt að tala um eitthvað allt annað;-) er það ekki bara brillijant hugmynd?? En án gríns þá var alveg æðislegt að komast loksins suður og hitta alla, við náðum meira að segja að hitta 4 nýja og flotta stráka.. heimsóttum auðvitað ömmu og afa, Ellu og Stefán tengdó, vinafólk okkar sem býr rétt við Selfoss og nokkra aðra vini .. En eina vinkonu mína náði ég ekki að hitta.. Hidda mín þið verðið á forgang þegar við komum næst...
Ég ætla að vona að fólkið mitt verði fyrir sunnan næst þegar við förum, það vantaði bara að hitta Drangsnes fólkið mitt (vona að þau komist suður næst) og Haffa minn og Sigrúnu, en það styttist nú í að þau mæti til landsins.. Ætli við stefnum ekki á að fara einu sinni suður fyrir jól.. En þetta er meira en að segja það að skreppa svona suður þegar maður er með fullskipaða dagskrá, við vorum alveg búin á því þegar við komum heim, þetta var sko engin afslöppunarferð, en alveg þess virði:-)
Núna er ég bara í afslöppun heima, njóta þess að vera ein heima, Ingþór er að vinna og Daníel er úti að leika.. Það er svo skrýtið núna að mér finnst ég alltaf vera í fríi... hef aldrei verið í vinnu þar sem mér finnst ég vera meira heima en í vinnunni.. reyndar vinn ég lengri vinnudag þá daga sem ég er í vinnunni en mér finnst æðislegt að hafa ekki bara laugardag og sunnudag heima í fríi, þetta er svo breytilegt, engir dagar eins.. og maður veit næstum aldrei hvaða dagur er og þá líður tíminn svo fljótt.. bara gaman:-)
Annars er bara lítið að frétta, bara vinna og skóli og vera heima og njóta þess að vera í fríi.. með nýja LCDinu;-)

Bæjó!!

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Atburðarteljari